Brottfallsnemar verða bótaþegar Linda Blöndal skrifar 17. maí 2014 21:15
Þrjú þúsund ungmenni eru á framfærslustyrk sveitarfélaganna og veldur fjöldi ungra karla sem eru félagslega óvirkir og á bótum miklum áhyggjum innan félagsþjónustunnar. Þetta má lesa í skýrslu Rauða krossins sem nefnist “Hvar þrengir að?” sem kynnt var í gær. Atvinnuleysi meðal ungs fólks, 18 til 24 ára er 7,7 prósent á meðan meðal atvinnuleysi á landinu er 4,5 prósent. Atvinnuleysistölur segja þó ekki alla söguna því sumir hafa misst bótaréttinn.Fjórir milljarðar í bætur Í nýlegri skýrslu um menntamál sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaganna á Höfuðborgarsvæðinu og nefnist „Samvinna skólastiga“ var fjallað um kostnaðinn sem hlýst af brottfalli nema úr framhaldsskólum. Skúli Helgason, verkefnisstjóri vinnuhópsins, segir að tengsl séu án efa á milli brotthvarfs úr framhaldsskólum og fjölda ungra karla sem er á framfærslu sveitarfélaga. Kostnaðurinn sé mikill fyrir samfélagið og bendir á að fjórir milljarðar séu alls áætlaðir í framfærslustyrki hjá Reykjavíkurborg á þessu ári. Það sé allra hagur að sveitarfélög og ríkið vinni saman að því að minnka brottfall í skólum því þar með verði færri á framfærslu sveitarfélaganna. Byrðin er þung víða um land hjá sveitarfélögum vegna bágrar fjárhags– og félagslegrar stöðu ungs fólks og sér í lagi ungra manna.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira