Innlent

Þrír til starfa í þýðingarmiðstöð á Seyðisfirði

Freyr Bjarnason skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra opnaði miðstöðina í gær.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra opnaði miðstöðina í gær. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, opnaði í gær starfsstöð þýðingarmiðstöðvar á Seyðisfirði.

Að því er kemur fram í tilkynningu munu þrír starfsmenn starfa á Seyðisfirði en nú þegar eru starfsstöðvar á Ísafirði og Akureyri og í Reykjavík.

Þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins var stofnuð árið 1990 vegna viðræðna um EES samninginn en meginhlutverk hennar er að þýða gerðir sem heyra undir EES.

Þá hafa starfsmenn hennar einnig sérhæft sig í að þýða alþjóðlega samninga, lagatexta og aðra texta þar sem krafist er staðlaðs hugtakaforða. Einnig sinnir þýðingarmiðstöðin tilfallandi verkefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×