Lengri skipunartími myndi auka sjálfstæði Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2014 07:00 Stefán Jóhann Stefánsson hélt erindi um sjálfstæði Seðlabankans í vikunni. fréttablaðið/GVA
Til að auka sjálfstæði Seðlabanka Íslands mætti lengja skipunartímann, til dæmis í átta ár án endurskipunarmöguleika. Þetta sagði Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabanka Íslands, í erindi sem hann hélt á málstofu Seðlabankans á þriðjudag. Erindi Stefáns Jóhanns byggir á meistararitgerð sem hann skrifaði í námi í opinberri stjórnsýslu. Í erindinu rekur hann helstu mælikvarða sem fræðimenn hafa sett fram um sjálfstæði seðlabanka. Þar kemur fram að talið sé æskilegt að skipunartíminn sé lengri en nú er, jafnvel 8 ár eða meira. Skipunartíminn hafi aftur á móti verið lækkaður úr 7 árum í 5 ár með lagabreytingu í febrúar 2009. „Möguleiki á endurskipun eykur ekki sjálfstæðið, síður en svo, samanber nýlega atburði,“ sagði Stefán Jóhann. Annað lykilatriði sé hver skipi seðlabankastjóra. Eftir því sem fleiri komi að skipunarferlinu, þeim mun meira teljist sjálfstæðið. „Hér á landi er það nú einn ráðherra sem skipar seðlabankastjóra eftir að þriggja manna valnefnd hefur metið hæfi umsækjenda. Einkunn Seðlabankans gæti því verið hærri. Kannski væri ráð að auka aðkomu þingsins, til dæmis þannig að efnahags- og viðskiptanefnd, eða önnur nefnd á vegum þingsins, staðfesti val á bankastjóra, til að hækka einkunn okkar hér,“ sagði Stefán.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira