Íbúar stefna verktökum vegna tjóns af völdum sprenginga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. október 2014 12:49 Frá framkvæmdum í ársbyrjun. Vísir/GVA
Íbúar við Grandaveg og Lágholtsveg í Vesturbæ Reykjavíkur hafa höfðað mál á hendur verktakafyrirtækjunum Hagtaki og Þingvangi og Vátryggingafélagi Íslands vegna tjóns sem íbúarnir telja að þeir hafi orðið fyrir vegna sprenginga á svonefndum Lýsisreit í ársbyrjun. Vilja þeir að viðurkennd verði skaðabótaskylda vegna tjónsins auk þess sem fyrirtækin greiði málskostnað. Þingvangur er eigandi umræddar lóðar en Hagtak var undirverktaki sem sá um sprengingarnar.Kjarninn greindi fyrst frá málinu í morgun en Vísir hefur tvær stefnur undir höndum. Um er að ræða íbúa annars vegar í húsi við Grandaveg 38 og hins vegar við Lágholtsveg 15. Fasteignirnar liggja að Lýsisreitnum. Sprengingarnar stóðu yfir frá 6. janúar til 31. mars að en til stendur að reisa íbúðarhúsnæði á reitnum þar sem Lýsi var áður til húsa. Meðal annars þurfti að sprengja klöpp á reitnum fyrir bílakjallara en áætlað var að sprengingum lykil mánaðarmótin febrúar mars. „Það gæti dregist vegna ákvörðunar um að draga úr krafti sprenginga. Magn sprengiefnis var minnkað um helming,“ sagði Brynjar Einarsson, talsmaður Þingvangs, í samtali við Fréttablaðið. Sú varð raunin.Auður Sigríður Kristinsdóttir sýnir skemmdir í kjallara sínum í febrúar.Vísir/GVAHeilbrigð skynsemi Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir er annar íbúanna á Lágholtsvegi, aðeins sex metrum frá klöppinni þar sem sprengt var. „Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag frá því byrjað var að sprengja. Það er sprunga í vegg innanhúss og klæðningin utan á húsinu er að losna. Það virðist vera sem reglugerðin um sprengingar sé ansi rúm og ekki eiga við í þéttbýli. Hins vegar hef ég heyrt að það sé yfirleitt venjan þegar sprengt er í þéttbýli eða nálægt húsum að minnka leyfilegan hámarkskraft í sprengingum um helming sem nú er loksins búið að gera hér. Þetta er orðið mun bærilegra en samt ansi mikið. Þeir eru svo svakalega nálægt,“ sagði Svanlaug í viðtali við Fréttablaðið í febrúar. „Heilbrigð skynsemi segir manni að ef einhver skemmir fyrir manni eigi hann að bæta fyrir það,“ sagði Auður Sigríður Kristinsdóttir, annar íbúanna á Grandavegi 38, í samtali við fréttastofu í febrúar. Sýndi hún hvernig molnað hafði úr grjótveggjum í kjallara hennar í viðtali við Fréttablaðið. Í stefnunum kemur fram að sprengingarnar hafi verið mjög öflugar og í andstöðu við ákvæði reglugerða um sprengiefni. Þá er vísað í bylgjuhraða einstakra sprenginga sem allt að 66 mm/s. Í reglugerð um sprengiefni komi fram að hámarksbylgjuhraði þegar sprengt sé nálægt „vanalegum“ byggingum á meðalhörðu bergi skuli vera undir 50 mm/s.Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir bendir blaðamanni Fréttablaðsins á sprungu í vegg í húsi sínu.Vísir/GVA131 árs gamalt hús Báðar fasteignir eru innan við 50 metra frá sprengisvæðinu. Fasteignin við Grandaveg er auk þess frá 1883, einlyft timburhús með hlöðnum kjallara, og er elsta húsið sem enn standi á svokölluðu Bráðræðisholti. Því geti fasteignin ekki talist vanaleg eins og segir í stefnunni. Báðir stefnendur fengu byggingatæknifræðing eða byggingarfræðing til að leggja mat á tjón sitt. Tjón var á steinhleðslu í kjallara og burðarsúlu á efri hæð í húsinu við Grandaveg að mati byggingatæknifræðings. Var það einnig álit byggingarfræðings að húsið við Lágholtsveg hefði orðið fyrir tjóni. Krafa stefnenda byggir á því að stefndu beri ábyrgð á tjóni stefnenda. Tjónið er sennileg afleiðing af háttsemi stefndu og í beinum orsakatengslum við sprengingar stefndu. Tjón stefnenda hefði ekki orðið nema vegna sprenginga sem stefndu bera ábyrgð á að því er segir í stefnunum tveimur. Stefnurnar voru lagðar fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Tengdar fréttir „Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag“ Íbúar nálægt Lýsisreitnum segja sprengingar þar vegna byggingaframkvæmda hafa valdið skemmdum á húsum þeirra. Þeir vilja bætur. Tilkynnt að sprengikraftur hafi verið innan leyfilegra marka reglugerðar. 14. febrúar 2014 10:28 Íbúar við Lýsisreitinn ekki tryggðir fyrir skemmdum "Verktakinn skrifaði undir yfirlýsingu á fundinum þar sem lofað var að lækka sprengikraftinn um helming til að koma til móts við íbúa á svæðinu,“ segir Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og formaður íbúasamtaka Vesturbæinga, í samtali við Vísi. 20. febrúar 2014 16:37 Þurfum að læra að byggja í þéttri byggð Þörf er á skýrari verklagsreglum við framkvæmdir í þéttri byggð, segir Páll Hjaltason, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Tryggja verði að ekki verði aftur röskun eins og á Lýsisreitnum. Undrandi á afstöðu tryggingafélaga. 15. febrúar 2014 10:00 Óttast skemmdir á heimili vegna tíðra sprenginga Við óttumst að húsið okkar verði fyrir skemmdum. Þetta segja íbúar í grennd við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 15. janúar 2014 20:45 Kvartað vegna titrings í húsum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fóru í gær fyrir umræðu um uppbyggingu á þéttingarreitum með tilliti til reynslu af Lýsisreitnum svokallaða í Vesturbænum. 5. mars 2014 07:00 Velta fyrir sér lögmæti sprenginganna Íbúasamtök Vesturbæjar hafa boðað til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 11. febrúar 2014 11:12 Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira
„Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag“ Íbúar nálægt Lýsisreitnum segja sprengingar þar vegna byggingaframkvæmda hafa valdið skemmdum á húsum þeirra. Þeir vilja bætur. Tilkynnt að sprengikraftur hafi verið innan leyfilegra marka reglugerðar. 14. febrúar 2014 10:28
Íbúar við Lýsisreitinn ekki tryggðir fyrir skemmdum "Verktakinn skrifaði undir yfirlýsingu á fundinum þar sem lofað var að lækka sprengikraftinn um helming til að koma til móts við íbúa á svæðinu,“ segir Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og formaður íbúasamtaka Vesturbæinga, í samtali við Vísi. 20. febrúar 2014 16:37
Þurfum að læra að byggja í þéttri byggð Þörf er á skýrari verklagsreglum við framkvæmdir í þéttri byggð, segir Páll Hjaltason, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Tryggja verði að ekki verði aftur röskun eins og á Lýsisreitnum. Undrandi á afstöðu tryggingafélaga. 15. febrúar 2014 10:00
Óttast skemmdir á heimili vegna tíðra sprenginga Við óttumst að húsið okkar verði fyrir skemmdum. Þetta segja íbúar í grennd við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 15. janúar 2014 20:45
Kvartað vegna titrings í húsum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fóru í gær fyrir umræðu um uppbyggingu á þéttingarreitum með tilliti til reynslu af Lýsisreitnum svokallaða í Vesturbænum. 5. mars 2014 07:00
Velta fyrir sér lögmæti sprenginganna Íbúasamtök Vesturbæjar hafa boðað til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 11. febrúar 2014 11:12