Innlent

Reykvíkingar áminntir um trjáhirðu

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Trjágreinar mega ekki hindra umferð.
Trjágreinar mega ekki hindra umferð. Fréttablaðið/Anton
Fjórtán hundruð garðeigendur hafa fengið bréf frá Reykjavíkurborg með hvatningu um að klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti, dragi úr götulýsingu, né hindri snjóruðningstæki.

„Verði ekki brugðist við þessari áskorun mun Reykjavíkurborg klippa á kostnað lóðarhafa,“ segir í bréfinu sem er ítrekun á bréfi frá því fyrr í haust

„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka,“ er vísað í byggingarreglugerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×