Segir Eyþór Inga hneyksla sjómenn Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 27. mars 2013 08:00 „
Ég hef upplifað gífurlega hneykslun innan sjávarútvegsins vegna þessa myndbands. Þetta kollvarpar öllu því sem við þekkjum,“ segir stýrimaðurinn Aríel Pétursson um Eurovision-myndbandið Ég á líf. Í myndbandinu sést vel að Eyþór er ekki alvöru sjómaður, að sögn Aríels. „Hinn almenni Evrópubúi tekur kannski ekki eftir því en fyrir sjóperverta eins og mig er þetta alveg hræðilegt,“ segir hann og bætir við að stærsta synd Eyþórs í myndbandinu sé að slægja karfa. „Slæging karfa er jafn mikil fásinna og að skræla bláber eða flysja SS-pylsu,“ segir Aríel og vísar í bók Valdimars Inga Gunnarssonar, Meðhöndlun á fiski um borð í fiskiskipum, þar sem segir: „Karfi er ekki slægður, m.a. vegna þess að lítið er um fæðu í maga hans. Þegar karfi er dreginn upp af miklu dýpi þrýstist fæða upp úr maga hans á leiðinni upp að sjávaryfirborði vegna þrýstingsmunar“. „Svo stingur karfinn líka og því óvænlegur til slægingar. Enda kemur nú skýrt fram í myndbandinu að Eyþór stingur sig á karfanum, eða hnífnum. Ég get ekki verið viss enda er þetta myndband óskiljanlegt með öllu,“ segir Aríel. Aríel segir fleira koma upp um Eyþór. „Þessi designer-frakki er auðvitað alveg út í hött. Svo leggur hann líka hnífinn snyrtilega frá sér áður en hann tosar innyflin út. Alvöru sjómaður á að geta gert það í einu handtaki með hnífinn í hendinni. Hann yrði sennilega kjöldreginn fyrir þessar aðferðir sínar ef til hans sæist meðal vanra manna,“ segir hann.
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira