Aldrei fleiri hópnauðganir VG skrifar 3. apríl 2013 11:52 Guðrún Jónsdóttir ásamt starfsmönnum Stígamóta og forstöðumanns Kristínarhúss, Steinunni Gyðu Guðjónsdóttur (lengst til vinstri.)
Alls leituðu 288 nýir einstaklingar til Stígamóta á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu samtakanna sem kynnt var í dag. Þetta eru 25 færri einstaklingar en leituðu til Stígamóta árið 2011. það breytir ekki því að ný mál árið 2012 eru fleiri en samtökin hafa séð á árunum 1995 til 2010. Heildarfjöldi einstaklinga sem komu í viðtöl til Stígamóta árið 2012 var 664, sem er um 12 % aukning frá árinu 2011. Heildarfjöldi viðtala voru 2077. Í skýrslunni kemur fram að alls leituðu 24 einstaklingar til Stígamóta vegna hópnauðgana, þar af einn karlmaður. Þar er um að ræða nýtt óhugnanlegt met, eins og Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, orðaði það. Í 11 tilfellum hópnauðgana voru ofbeldismenn 2, í sjö tilfellum voru þeir 3 og í tveimur voru þeir 4. Þá voru lyfjanauðganir 22 en samtökin hafa ekki séð slíkan fjölda áður á einu ári. Taka skal fram að þolendur kynferðisofbeldis leita sér oft aðstoðar árum eða áratugum eftir kynferðisbrotin, því þarf ekki að vera að öll tilvikin hér fyrir ofan hafi átt sér stað á síðasta ári. Einnig vekur athygli að 12 konur nefndu klám sem ástæðu fyrir komu sinni til Stígamóta. „Það er meðal annars dæmi um fyrrverandi kærasta sem hafði undir höndum kynlífsefni af stúlku og vildi henni ekkert gott," útskýrði Guðrún þegar hún var spurð frekar út í ástæður þess að konur nefndu klám þegar þær leituðu sér hjálpar. Guðrún bætti raunar við að flokkurinn væri víðtækur, meðal annars væri í þessum flokki að finna konur sem hafði verið misboðið vegna þess að maki þeirra krafðist þess að þær stunduðu kynlíf með þeim eins og það er sýnt í klámmyndum. Þá er nektardans einnig talinn með í þessum málaflokki. Þá sýna tölur einnig að konur sem gerendur í sifjaspellsmálum voru óvanalega margar, eða 4%. Árið 2009 var sú tala 1,6% sem var þá hæsta talan yfir konur sem gerendur. Einnig sýna tölurnar að á eftir föður/stjúpföður, sem er langoftast gerandinn í sifjaspelli, þá er bróðir/stjúpbróðir næst oftast gerandinn, eða í tæplega 14% tilvika. Yfirleitt eru þeir mjög ungir þegar brotin eru framin. Hættulegasti nauðgarinn er enn þá vinur/kunningi eins og fram kemur í skýrslu Stígamóta. Næst algengasti nauðgarinn er ókunnugur. Guðrún segir það áhyggjuefni hversu fá mál rata til dómstóla, en tæplega tíu prósent af þeim sem leita til Stígamóta kæra brotin, enn færri mál enda með sakfellingu. „Þá fara þau inni í hakkavélina sem lögreglan, saksóknari og dómstólar eru," sagði Guðrún ómyrk í máli. Hún sagði eitthvað mikið að í ferli kynferðisbrotamála hjá hinu opinbera og tölfræðin sýndi það glögglega.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira