Leikskólinn 101: Foreldrar krefjast forgangs á aðra leikskóla Haraldur Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2013 12:30 Starfsmenn skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar funduðu með foreldrum barna af ungbarnaleikskólanum 101 í gær.
Foreldrar barnanna sem voru í vistun á ungbarnaleikskólanum 101 krefjast þess að börnum þeirra verði boðin forgangspláss á öðrum leikskólum borgarinnar. Þetta kom fram á fundi sem haldinn var af Reykjavíkurborg vegna málsins í gær og í fréttatilkynningu sem skóla- og frístundasvið borgarinnar sendi á fjölmiðla nú fyrir hádegi. „Fram kom hjá foreldrum að neyðarástand ríkti og því yrði borgin að taka af skarið og bjóða þeim forgangspláss á leikskólum borgarinnar. Börnin hefðu hugsanlega orðið fyrir ofbeldi í leikskólanum sínum sem hlyti að tryggja þeim ákveðinn forgang. Þeirri hugmynd var varpað fram að borgin myndi reyna að koma nokkrum börnum fyrir á nærliggjandi leikskólum,“ segir í fréttatilkynningunni. Þar segir einnig að Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólamála hjá skóla- og frístundasviði borgarinnar, hafi sagt á fundinum að staða borgarinnar væri þröng þegar kæmi að lausum leikskólaplássum, sérstaklega í Vesturbæ og nærliggjandi hverfum, en að möguleiki væri á lausum plássum hjá dagforeldrum og ungbarnaleikskólum í öðrum hverfum. Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, sagði þá að stefna borgarinnar væri sú að bjóða þeim sem yrðu tveggja ára á árinu leikskólapláss auk barna sem hafa skilgreindan forgang samkvæmt reglum um leikskóla og að fáein börn af ungbarnaleikskólanum 101 væru að komast á þann aldur að eiga rétt á dagvistun í borgarreknum leikskólum. „Skóla- og frístundasvið er ennfremur að vinna með öðrum sjálfstætt starfandi ungbarnaleikskólum um að fjölga plássum sem foreldrar leikskólabarna í 101 gætu þá sótt um til að leysa bráðavanda þeirra,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira