Innlent

Mál leyfislausa Landspítalamannsins sagt grafalvarlegt

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Elsa Björk Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Elsa Björk Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál því hjúkrunarstarfið er mjög flókið og þarna er verið að sinna fárveiku fólki,“ segir Elsa Björk Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, um það að starfsmaður krabbameinsdeildar Landspítalans hafi starfað þar í tvö ár án tilskilinna réttinda sem hjúkrunarfræðingur.

„Í þessu starfi má ekkert út af bera og það er auðvitað bara algjörlega ólíðandi að aðrir en þeir sem hafa til þess tilskilin leyfi séu að sinna þessum störfum.“

Elsa segir málið hafa komið upp við reglubundna skoðun innanhúss hjá félaginu og hafi ábendingum um það verið komið til Landspítalans.

„Við sáum að þarna var misræmi á milli innborgana. Það var greitt fyrir einstaklinginn hingað inn sem ber að gera samkvæmt lögum ef einhver tekur laun samkvæmt okkar kjarasamningi, en viðkomandi var ekki félagsmaður og hafði aldrei sýnt fram á hjúkrunarleyfi.“

Einsdæmi hér á landi

Elsa segir félagið leggja áherslu á það við stjórnendur heilbrigðisstofnana að ráða ekki aðra til hjúkrunarstarfa en hjúkrunarfræðinga.

„Þá erum við bæði að vísa til hjúkrunarnema, læknanema, tannlæknanema og fleiri aðila, sem hafa verið ráðnir í stöðu hjúkrunarfræðinga og hafa auðvitað enga þekkingu, reynslu eða leyfi til að sinna þessum störfum.“

Elsa segist ekki muna eftir öðru sambærilegu dæmi hér á landi.

„Ekki þar sem viðkomandi hafði ekki lokið tilskyldu námi. Það hefur komið upp í okkar athugunum að fólk hafi starfað sem hjúkrunarfræðingar án leyfis en þá hefur það verið þannig að fólk hafi ekki sótt um leyfi að loknu námi, en svo hefur það verið leiðrétt. Þetta er í fyrsta skipti sem ég man eftir að viðkomandi hafi bara alls ekkert lokið hjúkrunarfræðinámi og þar af leiðandi ekki haft rétt á því að fá hjúkrunarleyfi.“


Tengdar fréttir

Próflaus í tvö ár á Landspítala

Landspítalinn hefur komist að því að starfsmaður á krabbameinsdeild spítalans hefur starfað þar í tvö ár án þess að hafa tilskilin réttindi sem hjúkrunarfræðingur. Honum var umsvifalaust sagt upp störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×