Innlent

Vilja auðveldari flokkun og meiri endurvinnslu

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Skorað var á borgina með undirskriftalistum á mjólkurfernum.
Skorað var á borgina með undirskriftalistum á mjólkurfernum. Mynd/Reykjavíkurborg
Fulltrúar ungliðahreyfingarinnar Breytendur – Changemaker á Íslandi afhentu í gær Jóni Gnarr borgarstjóra undirskriftalista með áskorun um aukna endurvinnslu á sorpi.

Breytendur segja öfugsnúið að það kosti peninga að flokka rusl. Ódýrast og einfaldast sé fyrir fólk að henda öllu sorpi í gráu tunnuna. Þau sem flokki þurfa að greiða fyrir sína endurvinnslutunnu sjálf eða gera sér ferð í móttökustöðvar. „Þetta er ekki hvetjandi sorphirðustefna,“ segir í bréfinu til borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×