Formaður sagði af sér með ljóðalestri Garðar Örn Úlfarsson skrifar 21. nóvember 2013 07:00 Elías Pétursson, fráfarandi formaður skipulagsnefndar í Mosfellsbæ, heldur mikið upp á Davíð Stefánsson og las úr einu ljóða hans á síðasta nefndarfundi sínum. Fréttablaðið/GVA „
Ég vildi komast á spjöld sögunnar með því að verða fyrstur til að setja part úr ljóði í fundargerð skipulagsnefndar,“ segir Elías Pétursson sem sagt hefur af sér sem formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar. Elías hefur setið í skipulagsnefnd í um fjögur ár. Frá því um mitt þetta kjörtímabil hefur hann gegnt formennsku í nefndinni. Á þriðjudag kvaddi hann með ljóði eftir Davíð Stefánsson. „Að vera í samfélagsverkefni eins og skipulagsnefnd tekur gríðarlegan tíma. Ég rek eins manns ráðgjafarfyrirtæki og í hvert skipti sem ég geri eitthvað fyrir skipulagsnefnd er ég kauplaus. Þannig að peningalega hafði ég ekki efni á að vera í þessu lengur,“ segir Elías og bætir við að það sé meginástæða afsagnarinnar. Hina skýringuna segir Elías vera vaxandi mælingaverkefni fyrirtækis hans fyrir Mosfellsbæ, jafnvel þótt það sé aðeins lítill hluti af rekstri fyrirtækisins og hafi ekkert með verkefni hans í skipulagsnefnd að gera. „Ég vil ekki að nokkur geti efast um heilindi mín eða gert því skóna að ég njóti einhverra gæða út á setu í nefndinni. Ég hætti til að fyrirbyggja það,“ segir Elías. Hefðin hérlendis sé að telja alla óheiðarlega fyrirfram nema þeir geti sannað hið gagnstæða. „Þeir sem reka fyrirtæki í örlitlum viðskiptum við sveitarfélagið eru jafnvel dæmdir frá því að taka þátt í samfélagslegri umræðu í sinni heimabyggð,“ segir Elías. „Ég nenni einfaldlega ekki að standa í rifrildi við fólk sem sér samsæri í hverju horni. Samfélagið verður því að vera án mín hvað þetta varðar.“ Setan í skipulagsnefnd hefur að sögn Elíasar verið með því allra skemmtilegasta sem hann hefur gert. „Mér finnst því leitt að þetta skuli vera svona,“ segir hann um brotthvarfið sem hann kryddaði með upplestri á þremur erindum úr ljóðinu Einn kemur þá annar fer eftir Davíð Stefánsson. „Þessu er ekki beint gegn neinum sérstökum en punkturinn sem ég vil koma til skila er að hvorki stjórnmálamenn né aðrir eru ómissandi,“ segir Elías sem kveður fundarmenn hafa verið nokkuð undrandi á ljóðalestrinum. „Það sló að minnsta kosti þögn á hópinn.“Davíð Stefánsson.Einn kemur þá annar ferÞað heldur allur fjöldinn, sem hefur mörgu að sinna,að hætta sé á ferðum, ef breytt er gömlum sið,að gæfa heimsins hvíli á verkum sem þeir vinna,og vonlaust sé um allt - ef þeirra missti við.Og fæsta þeirra grunar, sem fellur þyngst að hverfa,hve fáir leggja á minnið að þeir hafi verið til.Þeir gleyma, hverjir sáðu, sem uppskeruna erfa,og æskan hirðir lítið um gömul reikningsskil.Við iðjumannsins starfi tekur annar sama daginn,og ef hann deyr að kvöldi, tekur næsti maður við.Lífið yrkir þrotlaust ... en botnar aldrei braginn,en breytir fyrr en varir um rím og ljóðaklið.(Davíð Stefánsson.)
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Fleiri fréttir Tæp hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira