Tónlist

Spænskir fjölmiðlar ánægðir

Hljómsveitin Samaris var í viðtali hjá spænska ríkissjónvarpinu.
Hljómsveitin Samaris var í viðtali hjá spænska ríkissjónvarpinu. Mynd/Aníta Eldjárn
Spænskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að fjalla um Sónar-hátíðina sem var haldin í fyrsta sinn á Íslandi um miðjan febrúar. Ríkissjónvarpið, RTVE, var með rúmlega tveggja mínútna innslag um hátíðina og ræddi bæði við Enric Palaou, einn af stjórnendum aðalhátíðarinnar í Barselóna, og tvo af þremur meðlimum tríósins Samaris sem spilaði á hátíðinni. Spænska ríkisútvarpið fjallaði einnig um hátíðina og sagði m.a. frá Ólafi Arnalds og einnig Mugison og hljóðfæri hans, Mirstrument.

Blaðið El Mundo hrósaði íslensku flytjendunum Sin Fang, Óla Ofur, Mugison og Ólafi Arnalds fyrir frammistöðu sína. El País var sömuleiðis jákvætt í garð hátíðarinnar og sagði blaðamaður þess í fyrirsögn að Ísland færi dansandi í gegnum hrunið. Í grein sinni segir hann Samaris hafa verið besta á öðrum degi hátíðarinnar og að söngkona hljómsveitarinnar væri frábær.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×