Lífið

Tíu daga tónleikaferð

Rokkararnir í Skálmöld eru á leiðinni í tónleikaferð um landið.
Rokkararnir í Skálmöld eru á leiðinni í tónleikaferð um landið. fréttablaðið/stefán
Rokkararnir í Skálmöld eru á leiðinni í tíu daga tónleikaferð um landið sem ber yfirskriftina Myrkur, kuldi, ís og snjór 2013. Á meðal áfangastaða er Litla-Hraun en vistmenn hafa nokkuð oft lýst yfir áhuga á að fá Skálmöld í heimsókn.

Fyrstu tónleikarnir voru í Hnífsdal í gærkvöldi en þeir síðustu verða á Gamla Gauknum í Reykjavík 9. mars. Miðaverð er 3.000 krónur og fer miðasala fram við innganginn nema annað sé auglýst sérstaklega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.