Innlent

Björt framtíð næst stærsti stjórnmálaflokkurinn

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar segist sátt við vísbendingar fylgiskönnunar um fylgi flokksins.
Framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar segist sátt við vísbendingar fylgiskönnunar um fylgi flokksins.
Björt framtíð er næst stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt fylgiskönnun MMR sem birt var í dag.

Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar er að vonum ánægð með niðurstöðu könnunarinnar en segir aldrei á vísan að róa í pólitík.

„Það er ekki hægt að segja annað en að við séum bara glöð með þessa niðurstöðu, okkur finnst þetta vera í samræmi við það sem við höfum verið að sjá annars staðar í könnunum á sveitarstjórnarstiginu. Þar erum við alls staðar með fulltrúa inni sem er mjög ánægjulegt,“ segir Heiða í samtali við Vísi.

Fylgi Bjartar framtíðar mælist nú 15,2% borið saman við 14,5% í síðustu mælingu. Framsóknarflokkurinn mælist með minna fylgi og fær 15,0% í könnuninni.

„Þessi yfirflutningur frá Besta yfir í Bjarta hefur gengið mjög vel en það er ekkert sjálfsagt. Það er mikil vinna þar að baki.

Eins held ég að þetta séu líka jákvæð viðbrögð við því hvernig þingflokkurinn hefur verið að vinna inni á þingi, það er erfitt verk að standa við stóru orðin úr kosningum en ég tel að við séum að uppskera í samræmi við það hvernig við höfum verið að vinna inni á þingi,“ segir Heiða.

Aðspurð að því hvort hún telji að þetta muni skila sér í sveitarstjórnarkosningum í vor segir Heiða: „Ég geri fastlega ráð fyrir því en það án auðvitað aldrei neinn neitt í pólitík og aldrei á vísan að róa þar. En ég held að þetta sé vísbending og hvetur okkur áfram til að gera ennþá betur og það munum við gera.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×