Sport

Ég spila þar sem þjálfarinn telur best

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það er mikil tilhlökkun í hópnum og vonandi hjá allri þjóðinni,“ segir Hallgrímur Jónasson, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu.

„Liðin eru bæði vel skipuð en Króatarnir hafa ekki náð í góð úrslit að undanförnu og því held ég að þetta sé ágætis tímapunktur fyrir okkur til að mæta þeim.“

Hallgrímur er einn þeirra leikmanna sem gæti leyst hægri bakvarðarstöðuna en hægri bakvörður íslenska landsliðsins, Birkir Már Sævarsson, verður í leikbanni í fyrri leiknum.

„Það er auðvitað draumurinn að byrja leikinn á föstudaginn og treysti ég mér vel í það ef kallið kemur. Ég er klár í hvaða stöðu sem er og hef æft mestmegnis í bakvarðarstöðunni og í miðverðinum með landsliðinu, en ég spila bara alltaf í þeirri stöðu sem þjálfarinn telur að best sé fyrir liðið hverju sinni.“

Ísland leikur sinn allra mikilvægasta knattspyrnuleik í sögunni á föstudaginn gegn Króötum.

„Menn eru lítið stressaðir þessa stundina en það mun kannski koma þegar nær dregur leiknum, núna eru leikmenn liðsins í raun bara spenntir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×