Kynjakvótar þjóna ekki hag stelpna í Gettu Betur Boði Logason skrifar 20. september 2013 13:52 "Við erum algjörlega sammála því að það vanti stelpur í Gettu Betur,“ segir formaður Málfundafélagsins í Verzlunarskólanum. Mynd/365
Formaður Málfundafélags Verzlunarskóla Íslands segir að meta eigi fólk af eigin verðleikum en ekki kyni. Verzló er eini skólinn sem styður ekki tillögu Ríkisútvarpsins um að taka upp kynjakvóta í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu Betur.Nýverið var samþykkt að taka upp kynjakvóta í spurningakeppninni. Tekin var ákvörðun um þetta á fundi stýrihóps keppninnar en í honum sitja fulltrúar fjögurra menntaskóla sem komast í undanúrslit árið áður, ásamt fulltrúum Ríkisútvarpsins. Fyrirkomulagið, sem tekur gildi áður en keppnin hefst vorið 2015, gerir ráð fyrir að aldrei megi vera fleiri en tveir af sama kyni í liðum skólanna. Fulltrúar MR, MH og Kvennaskólans studdu tillöguna, en Verzlunarskólinn var á móti henni. Úlfur Þór Andrason, situr í stjórn nemendafélags Verzlunarskóla Íslands og er formaður Málfundafélagsins í skólanum. „Við skiljum alveg að það eru rök með og á móti þessu. Við ákváðum að leggjast gegn þessu einfaldlega vegna þess að við teljum þetta ekki þjóna hag stelpna sem komast inn í liðin. Við erum ekki bara að hugsa um eigin hag, við vorum að taka inn stelpu sem liðsstjóra sem þýðir að hún verður komin inn í liðið eftir eitt ár. Nú er það þannig fyrir hana komið að hún verður þekkt sem kvótastelpan. Þetta finnst okkur ekki þjóna tilganginum,“ segir hann. Úlfur segir að meta eigi fólk af eigin verðleikum, en ekki kyni og skynsamlegt sé að reyna aðrar leiðir fyrst til að hvetja stúlkur til að taka þátt. „Ég veit að í MR skikka þeir alla í prófið, það væri skref sem hægt væri að taka á undan kynjakvótunum. Við erum alveg tilbúin að sættast á þetta til skamms tíma, og sjá hvernig þetta reynist. Við erum algjörlega sammála því að það vanti stelpur í Gettu Betur. Þetta er bara viðhorf sem þarf að vinna bug á innan frá í skólunum, frekar en að hamla þessu með einhverri löggjöf eða boðum,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira