Innlent

Stúlkubarn lést þegar fjórhjól valt

Banaslys varð við bæinn Skjöldólfsstaði í Breiðdal laust yfir klukkan 16 í gær. Stúlkubarn lést þegar fjórhjól, sem hún var farþegi á, valt. Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. Lögreglan á Eskifirði fer með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×