Innlent

Segir forsætisráðherra sjá óvini í hverju horni

Höskuldur Kári Schram skrifar
Þingmenn stjórnarandstöðunnar furða sig á gagnrýni forsætisráðherra í garð Seðlabankans. Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar segir að ráðherra sé byrjaður að sjá óvini í hverju horni.

Forsætisráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að starfsmenn Seðlabankans væru komnir í pólitík og telur að þeir séu byrjaðir að gíra sig upp til að vera á móti boðuðum skuldaleiðréttingum ríkisstjórnarinnar.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, segir slæmt fyrir starfsmenn Seðlabankans að sitja undir þessum ásökunum. „Forsætisráðherra getur auðvitað verið ósammála Seðlabankanum um mat þeirra en ég lít ekki á það sem pólitík að fara með hefðbundin viðvörunarorð þegar kemur að efnahagsreikningi Seðlabankans,“ segir Katrín.

Helgi Hjörvar furðar sig á gagnrýni forsætisráðherra. „Þetta eru fáranlegar árásir. Forsætisráðherra er farinn að sjá óvini í hverju horni. Í rauninni er hann að skamma formann Sjálfstæðisflokks því það var Bjarni Benediktsson sem sagði á Alþingi í gær að skuldaleiðréttingarnar megi ekki leiða til skuldaaukningar hjá ríkissjóði og ekki fela í sér peningaprentun,“ segir Helgi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×