Varhugavert að auglýsa ferðaáætlunina Kjartan Hreinn njálsson skrifar 28. mars 2013 18:33
Landsmenn leggja nú margir land undir fót og sem fyrr er mikilvægt að ganga frá sínum málum heima fyrir. Varhugavert er að auglýsa ferðaáætlunina á Facebook en svo virðist sem að margir gleymi öðrum samfélagsmiðlum. Ein stærsta ferðavika ársins stendur nú sem hæst og fjölmargir hyggja á ævintýraferðir um íslenska eða erlenda náttúru. En áður en skellt er í lás og haldið á út í helgina er mikilvægt að tryggja öryggi heimilisins. „Það sem við höfum líka verið að gera er að ráðleggja fólki að reyna láta líta út fyrir að það sé einhvern heima. Skilja eftir útvarp eða ljós, jafnvel að fá nágranna til að nota bílastæðin eða nota ruslatunnuna," segir Rannveig Þórisdóttir deildarstjóri á upplýsinga- og áætlanadeild LRH. Sem fyrr ítrekar Rannveig mikilvægi samskiptamiðla í þessum efnum. Í heimi þar sem allir tengjast öllum er nauðsynlegt að halda vissum upplýsingum leyndum. „Í gamla daga vorum við að segja fólki að vera ekki að segja á símsvaranum að það sé farið í frí. Núna segjum við fólki að tilkynna það ekki á Facebook. Svo má kannski líka muna eftir Instagram og twitter og öllu þessu. Sem við gleymum að passa upp á." Þetta eru þó fyrst og fremst vinalegar ábendingar frá lögreglunni. Staðreyndin er sú að innbrotum hefur fækkað töluvert á undanförnum misserum. Þannig áætlar Ríkislögreglustjóri að innbrot á tímabilinu mars tvö þúsund og tólf til febrúar tvö þúsund og þrettán hafi verið tæplega þrettán hundruð. Á sama tímabili í fyrra voru þau átján hundruð og fimmtíu og tvö þúsund og sjö hundruð yfir sama tímabil árin tvö þúsund og tíu til tvö þúsund og ellefu. „Þetta er kannski út af því að fólk er meðvitað. Við viljum alls ekki vera að hræða fólk. Það er mjög gott að vera meðvitaður og skynsamur."
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Sjá meira