Hver er þessi Deon McCaulay sem markahæstur með Van Persie? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2013 07:00 Deon McCaulay. Mynd/NordicPhotos/Getty
Robin van Persie hefur farið hamförum með hollenska landsliðinu í undankeppni HM en þessi framherji Manchester United er með 11 mörk í átta leikjum. Van Persie skoraði þrennu í 8-1 sigri á Ungverjum á föstudagskvöldið og varð með því markahæsti landsliðsmaður Hollendinga frá upphafi. Það þekkja hinsvegar fáir þann leikmann sem er ásamt Robin van Persie markahæsti leikmaðurinn í undankeppni HM í Brasilíu 2014. Deon McCaulay er orðinn 26 ára gamall og spilar með liði Belmopan Bandits í heimalandi sínu Belís. Belís er 335 þúsund manna þjóð í Mið-Ameríku við sunnanverð landamæri Mexíkó. McCaulay hefur eins og Robin van Persie skoraði 11 mörk í 8 leikjum í undankeppninni en á þó ekki möguleika að bæta við mörkum því Belís er löngu úr leik. Deon McCaulay skoraði fjögur marka sinna í tveimur sigrum á Montserrat í forkeppni undankeppninnar í Norður- og Mið-Ameríku og skoraði síðan sjö mörk í sex leikjum í riðlakeppninni þar sem Belís sat eftir. McCaulay hefur spilað í Kosta Ríka og Hondúras og fór fyrr á þessu ári á reynslu til Portland Timbers í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hann fékk hinsvegar ekki samning. Svo verður bara að koma í ljós hvort að McCaulay verður ennþá markahæstur eftir lokaumferðina á þriðjudaginn en þar geta kappar eins og Robin van Persie, Luis Suárez og Edin Dzeko allir auðveldlega bætt við mörkum.Flest mörk leikmanna í undankeppni HM 201411 mörk Robin van Persie, Hollandi Deon McCaulay, Belís10 mörk Lionel Messi, Argentína Blas Pérez, Panama Luis Suárez, Úrúgvæ Edin Dzeko, Bosnía Peter Byers, Antígva og Barbúda9 mörk Gonzalo Higuaín, Argentína Radamel Falcao, Kólumbíu 8 mörk Jerry Bengtson, Hondúras Clint Dempsey, Bandaríkin Shinji Okazaki, Japan Georges Gope-Fenepej, Nýja-Kaledónía
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri KR - ÍA | Mætast aðra umferðina í röð Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn þurfa á stigum að halda Valur - Þór | Akureyringarnir berjast fyrir lífi sínu FH - KA | Bæði lið reyna að halda sér uppi Þróttarar brutu bikarinn Coventry - Brighton | Sækir Lampard sinn fyrsta sigur? Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Sjá meira