Innlent

Lögregla rannsakar íkveikju

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Mynd/Anton
Kveikt var í rusli í kjallara íbúðarhúsnæðis í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrr í vikunni. Einn íbúi hússins fór niður í kjallara eftir að stigagangur hússins fylltist af reyk og sá eldinn sem logaði glatt. Hann hljóp til, sótti slökkvitæki sem hann átti í íbúðinni sinni og sprautaði úr því á eldinn. Hann varð að því loknu frá að hverfa vegna þess að svo mikill reykur var í húsnæðinu. Var hann fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 

Slökkvilið kom á staðinn, slökkti eldinn endanlega og reykræsti húsið.

Mesta mildi þykir að ekki hafa farið verr. Lögregla rannsakar nú málið þar sem að grunur leikur á um að íkveikju hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×