Innlent

Franski ferðamaðurinn fundinn

Fimmvörðurháls. Myndin er úr safni.
Fimmvörðurháls. Myndin er úr safni. Mynd úr safni

Franski ferðamaðurinn, sem leitað hefur verið að á Fimmvörðuhálsi í dag, er kominn í leitirnar.

Hann fór út af gönguleiðinni og rataði ekki inn á hana aftur. Björgunarmenn sem fundu manninn sögðu hann ágætlega á sig kominn og hugðust gefa honum hressingu og þurr föt og ganga með honum niður í Þórsmörk aftur.

Má reikna með að þeir verði komnir niður í Þórsmörk eftir um kvöldmatarleytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×