Borgin hætt við 300 milljóna hækkun Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. nóvember 2013 06:45 Til stóð að hækka gjaldskrá leikskóla um allt að 11,5 prósent um áramótin en ekkert verður af því. „
Við höfum rætt við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins og metum það svo að það sé breið samstaða um að reyna að sporna við verðbólgu með samstilltu átaki.“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs þar sem ákveðið var í gær að hætta við hækkanir á gjaldskrám. Að sögn Dags verða stofnanir borgarinnar af um 300 milljóna króna tekjum vegna þessa. Þá upphæð verði að bæta þeim „miðlægt“ úr borgarsjóði. „Við munum hafa óbreytta krónutölu í gjaldskránum,“ segir Dagur. Ekkert á að verða af áður áformuðum hækkunum á gjaldskrám vegna leikskóla, skólamáltíða, frístundaheimila, bókasafnsskírteina, sundlaugakorta og vegna þjónustu sem velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir.Dagur B. Eggertsson.„Við fögnum því að nú sé hlustað á gagnrýni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti sjálfstæðismanna. Hann hafi gagnrýnt gjaldskrárhækkanirnar harðlega í borgarstjórn. „Ég benti á þau efnahagslegu áhrif sem hækkanirnar myndu hafa, bæði fyrir verðlagsþróun og yfirstandandi kjarasamninga en einnig þau beinu áhrif sem þær myndu hafa fyrir fjárhag heimilinna í borginni. Undir okkar gagnrýni í borgarstjórn tóku aðilar vinnumarkaðarins og fjármálaráðherra,“ segir Júlíus.Júlíus Vífill Ingvarsson.Dagur segir fulltrúa meirihlutans hafa hlustað á gagnrýni. „Það eru útbreiddar áhyggjur af því að ef allir gera eins og venjulega, að taka hækkanir á verðlagi inn í sínar gjaldskrár eins og vant er, þá leiðir sú vanahugsun til sjálfkrafa verðbólgu,“ segir formaður borgarráðs og viðurkennir að þetta hafi einmitt verið gert í fjárhagsáætlun borgarinnar. Júlíus segir meirihlutann hafa gert alvarleg mistök. „Ég er þess fullviss að ef sjálfstæðismenn hefðu ekki haldið vöku sinni og lagt fram útreikninga um áhrif þessara gjaldskrárhækkana á heimilin í borginni að þá hefði þetta siglt hjá án þess það hefði vakið mikla athygli.“ Dagur segir að í baráttu við verðbólgu hafi allir svolítið verið að bíða eftir öllum. „Við tökum þá áhættu að taka frumkvæðið. Leiðangurinn lukkast ekki nema allir séu með. En einhver verður að byrja.“
Mest lesið „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Innlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Innlent Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Fleiri fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent