Innlent

1 af hverjum 23 börnum orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili sínu

Tæplega 70 prósent drengja sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eru frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að stundum eigi ofbeldi rétt á sér, samanborið við tæp 29 prósent á meðal drengja sem hafa ekki orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þetta kemur fram í viðmikilli skýrslu sem UNICEF á Íslandi gaf út í dag. Skýrslan ber heitið Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir.

Í skýrslunni, sem er um 70 blaðsíður, kemur meðal annars fram að börn sem orðið hafa fyrir heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi, einelti eða vanrækslu eru meira einmana en önnur börn. Þau sýna frekar áhættuhegðun, líður verr í skólanum og eru líklegri til að telja framtíðina vonlausa. UNICEF á Íslandi álítur þetta grafalvarlegt mál sem kallar á skýr viðbrögð samfélagsins og stórauknum forvörnum gegn ofbeldi á börnum.

Þá kemur einnig fram stúlkur sem hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili af hálfu fullorðins séu 8,5 líklegri til að reykja daglega en stúlkur sem hafa ekki orðið fyrir slíku ofbeldi. Nær helmingur stúlkna sem hafa orðið fyrir ofbeldi á heimili telja að framtíðina oft eða nær alltaf vera vonlausa. 1 af hverjum 23 börnum á Ísland hefur orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili sínu - það eru 4,4% barna hér á landi.

Hægt er að lesa skýrsluna hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×