300 kílómetra akstur og tvö flug til að komast til Osló Kolbeinn Tumi Daðason í Osló skrifar 15. október 2013 13:04 Kópaskersbúinn Árni er hér til vinstri á myndinni. mynd/vilhelm „
Við ákváðum að skoða þetta alvarlega eftir Kýpurleikinn. Svo skelltum við okkur á flugmiða á sunnudaginn,“ segja félagarnir Árni Kristjánsson og Páll Ólafsson. Árni og Páll búa í Sviss. Árni er verkfræðingur og býr í Zurich en Páll, sem er tölvunarfræðingur, hefur búið í fimm ár í landinu sem er þekkt fyrir hlutleysi. Páll býr í Lausanne og þurfti að keyra 300 kílómetra til Árna þaðan sem þeir tóku flug í morgun. „Við vöknuðum klukkan fjögur og flugum til Berlínar. Þaðan flugum við svo hingað,“ segir þeir félagar. Árni og Páll voru viðstaddir jafnteflið fræga í Sviss þar sem íslensku strákarnir sneru við blaðinu. Staðan var 4-1 á tímabili í síðari hálfleik og þá veltu Árni og Páll alvarlega fyrir sér að yfirgefa leikvanginn. „Við vorum að spá í að skella okkur bara á pub-inn. Það var ekki seldur bjór á vellinum,“ segja þeir félagar sem sjá ekki eftir því að hafa staldrað við. „Kolbeinn skoraði líka strax,“ segir Páll en mark Kolbeins kveikti í íslenska liðinu. Jóhann Berg skoraði svo tvö mörk og jafnaði metin eins og frægt er orðið. Þeir félagar eru bjartsýnir fyrir kvöldið. „Við gerum 1-1 jafntefli en Sviss vinnur Slóveníu 2-0 þ.a. við förum áfram,“ segir Árni. Páll hefur fulla trú á okkar mönnum. „Við vinnum 2-1.“Leikurinn í kvöld verður í beinni textalýsingu á Vísi. Gummi Ben mun lýsa leiknum beint á Bylgjunni og verður hægt að hlusta á lýsinguna inn í textalýsingarfrétt Vísis. Textalýsing, tölfræði og Gummi Ben. Allt á sama stað í kvöld á Vísi.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn „Hann er sonur minn“ Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Hákon og félagar léku manni fleiri í klukkutíma en töpuðu samt Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu