„Ef ég segi að barnið mitt hefði dáið ef ekki hefði verið fyrir flugvöllinn er rökræðan búin“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. október 2013 16:01 Rúnar Freyr (t.v.) segir að atriðið hafi verið ádeila á hitann í umræðunni um flugvöllinn.
Brjálaður „hlustandi“ hringdi inn í útvarpsþáttinn Bakaríið um helgina vegna flugvallarmálsins og hefur upptaka af símtalinu vakið viðbrögð margra. Um leikið atriði var að ræða og endaði símtalið á þá leið að „hlustandinn“ skaut fjölskyldu sína til bana og að lokum sjálfan sig. Rúnar Freyr Gíslason, leikari og annar umsjónarmaður Bakarísins, segir að atriðið hafi verið ádeila á hitann í umræðunni um flugvöllinn. „Það hringja oft alveg bilaðir menn til okkar, enda er Bylgjan með tugi þúsunda hlustenda og eðlilegt að allar skoðanir komi fram,“ segir Rúnar en bætir því við að auðvitað hafi atriðið verið grín. „Okkur fannst bæði fáránlegt að einhver myndi ganga svona langt en svo var þetta í leiðinni ádeila á málflutning þeirra sem hafa ýtt fram fólki sem segir að flugvöllurinn hafi bjargað lífi þeirra. Þar stoppar rökræðan. Ef ég kem og segi að barnið mitt hefði dáið ef ekki hefði verið fyrir flugvöllinn er rökræðan búin.“Viðbrögðin góð Rúnar segist hafa heyrt af einhverjum kvörtunum sem útvarpsstöðinni hefði borist en fyrir utan það hafi viðbrögðin verið ótrúlega góð. „Við leggjum stundum örlítinn hluta þáttarins undir smá pönk og vitleysu en það þarf enginn að hafa áhyggjur af því. Þátturinn höfðar til allra. En ætli ég geri ekki bara eins og stjórnmálamennirnir og segi: „Hafi einhver skaðast á þessu þá biðst ég auðmjúklega afsökunar“.“ Upptöku af símtalinu má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Fleiri fréttir Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Sjá meira