Alvarlegar athugasemdir við viðvörunarskilti á ensku Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 20. september 2013 11:58 Vegagerðin hefur ákveðið að gera breytingar á ljósaskiltum Vegagerðarinnar. mynd/vegagerðin
Íslensk málnefnd gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun Vegagerðarinnar að skipta íslensku út fyrir ensku á upplýsinga- og viðvörunarskiltum sínum við þjóðvegi landsins. Vísir sagði frá þessum breytingum í vikunni. Í fréttatilkynningu frá málnefndinni segir að ekki verði séð annað en að ákvörðunin sé brot á áttundu grein laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Áttunda grein laganna hljóðar svo: „Íslenska er mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu.“ Í tilkynningunni segir ennfremur að Vegagerðinni beri að veita almannaþjónustu sína á íslensku. Mikilvægar upplýsingar, svo sem viðvaranir vegna veðurs og færðar, eiga því lögum samkvæmt að vera á íslensku. Vegagerðin hafi ekki leyfi til að hafa þær eingöngu á ensku. Íslensk málnefnd óskar eftir því við Vegagerðina að farið verði að lögum í þessu efni. Rétt og skylt er að veita erlendum ferðamönnum góðar upplýsingar, en það megi ekki gerast á kostnað íslensku eða koma alveg í stað upplýsinga á íslensku. Finna þurfi leið til að flytja þessi boð bæði á íslensku og öðrum tungumálum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira