Engin leit fyrirhuguð á mönnunum níu frá Albaníu Hjörtur Hjartarson skrifar 16. september 2013 18:37
Engar áætlanir eru uppi um að hefja leit að þeim Albönum sem ekki skiluðu sér í leiguflug til heimalandsins í síðustu viku. Þeir mega vera á Íslandi í þrjá mánuði án þess að fá til þess sérstakt leyfi. Þrettán stuðningsmenn albanska landsliðsins í knattspyrnu ákváðu að fara ekki aftur til Albaníu að leik Íslands og Albaníu loknum eins og fyrirhugað var. Fjórir þeirra hafa sótt um hæli hérlendis en ekki er vitað um ferðir níu þeirra. Útlendingastofnun á enn eftir að fá til sín skýrslurnar sem teknar voru af hælisleitendunum og þar með málin til umfjöllunar. Ekki fæst uppgefið á hvaða forsendum mennirnir sækja um hæli á Íslandi. Alls hafa 36 Albanir sótt um hæli hérlendis það sem af er ári og eru ástæðurnar af ýmsum toga. Fimmtán af þessum 36 umsóknum hafa verið afgreiddar af Útlendingastofnun og var niðurstaðan sú sama í þeim öllum, beiðni um hæli var hafnað. Eins og aðrir Evrópubúar mega Albanir vera á Íslandi í þrjá mánuði sem ferðamenn. Enginn af áðurnefndum níumenningum er því hérlendis ólöglega, ennþá. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu sagði í samtali við fréttastofu að ekki væri í bígerð að reyna hafa upp á þeim 9 einstaklingum sem urðu eftir og hafa ekki sótt um hæli. Stefán benti einnig á að þeir gætu nú þegar verið farnir úr landi, lögreglan fengi ekki sjálfkrafa upplýsingar um slíkt, ekki frekar en um aðra ferðamenn væri að ræða.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira