Ása hættir sem forseti Leiklistarsambandsins - sátt við Grímuna Valur Grettisson skrifar 13. júní 2013 14:35 Forseti Leiklistarsambands Íslands, Ása Richardsdóttir, ætlar að láta af embætti næsta haust og mun ekki bjóða sig fram til endurkjörs. Ása hefur verið í forystu sambandsins frá árinu 2009.
Forseti Leiklistarsambands Íslands, Ása Richardsdóttir, ætlar að láta af embætti næsta haust og mun ekki bjóða sig fram til endurkjörs. Ása hefur verið í forystu sambandsins frá árinu 2009. Í samtali við fréttastofu segir Ása að það heimti mikla vinnu að sinna embættinu, „en þetta er mikilvægt starf því Leiklistarsambandið er sameiginlegur vettvangur allra í sviðslistum og helsti viðmælandi stjórnvalda á hverjum tíma,“ bætir hún við. Síðasta stóra framkvæmd Ásu í embætti forseta sambandsins voru sviðslistarverðlaunin Gríman sem var haldin í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, í beinni útsendingu á RÚV. „Ég er ánægð. Ég held að okkur hafi tekist að búa til hátíðlega og skemmtilega athöfn, jafnt fyrir sjónvarpsáhorfendur, sem og okkur sem í salnum voru,“ svarar Ása spurð hvernig henni hafi fundist til takast á hátíðinni. „RÚV er aðili að leiklistarsambandinu og við erum glöð yfir því að athöfnin var nú sýnd beint í sjónvarpi allra landsmanna eftir nokkurt hlé.“ Ása bætir við að það hafi verið skemmtilegt að sjá gömul myndbrot úr leikhúsi, úr safni sjónvarpsins, sem Egill Eðvarðsson dagskrágerðarmaður setti listilega saman. Ása segir hápunkt kvöldsins hafa verið afhending heiðursverðlauna sambandsins. „Ég var ákaflega stolt af því að fá að veita Gunnari Eyjólfssyni verðlaunin fyrir hans mikla ævistarf í þágu leiklistar,“ segir Ása og bætir við að margt hafi vissulega staðið upp úr eftir kvöldið, meðal annars nefnir hún sérstaklega flutning Gunnars Eyjólfssonar, sem „sýndi“ þeim Ingvari E. Sigurðssyni, Birni Hlyni Haraldssyni og Arnari Jónssyni, í tvo heimana þegar hann fór með texta úr leikritinu Pétri Gaut, en allir hafa þeir leikið aðalhlutverkið. „Það hefur verið gefandi að veita leiklistarsambandinu forystu og ég mun áfram vinna að spennandi verkefnum í sviðslistum, bæði hér heima og erlendis, “ segir Ása að lokum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira