Grýtti eggjum í Simon Cowell í beinni útsendingu 9. júní 2013 10:53
Lágfiðluleikarinn Natalie Holt varð landsfræg í Bretlandi í gærkvöldi þegar hún tók sig til í úrslitaþætti Britain's Got Talent og grýtti eggjum í dómarana, þar á meðal hinn alræmda Simon Cowell. Uppákoman er vægast sagt furðuleg, en Natalie, sem hefur verið tilnefnd til Bafta-verðlaunanna fyrir tónsmíðar, spilaði ásamt strengjakvartetti sínum, Raven Quartet, undir flutningi bræðranna Richards og Adams, sem kepptu til úrslita í gærkvöldi. Í miðju lagi hætti Natalie að spila, gekk inn á mitt sviðið, og grýtti eggjum í dómarana án fyrirvara. Gæslumenn koma næstum samstundis inn á sviðið og fjarlægja lágfiðluleikarann furðulega og bræðurnir héldu áfram að syngja eins og ekkert hefði í skorist. Í fyrstu héldu dómararnir að eggjakastið væri hluti af atriðinu, en þegar í ljós kom að svo var ekki, hrósuðu þeir bræðrunum fyrir frábæran flutning - og fyrir að halda ró sinni á sérkennilegu augnabliki. Lágfiðluleikarinn uppátækjasami hefur hinsvegar beðist afsökunar á að hafa kastað eggjum í dómarana. Hinar konurnar þrjár, sem eru með Natalie í kvartettnum, tóku sérstaklega fram á Twitter-síðu hljómsveitarinnar í gærkvöldi að þær hefðu ekki tengst gjörningnum eða vita hvað Natalie ætlaði sér. Lögreglan var kölluð á svæðið út af Natalie, en ákveðið var að aðhafast ekki frekar og verður atvikið ekki kært. Dómararnir létu hana þó heyra það eftir flutning bræðranna í gærkvöldi, Amanda Holden, einn dómaranna, sagði meðal annars að Natalie væri heimsk belja (e. stupid cow.) Cowell snéri þessu raunar upp í grín, og sagði þáttinn hafa „the eggs-factor“ (sem er afbökun á X-factor). Ekki er fyllilega ljóst hvað Natalie gekk til, en breskir fjölmiðlar greina frá því að hún hafi tekið þátt í forkeppninni á síðasta ári og ekki komist áfram. Myndbandið má sjá hér fyrir ofan.(Viðvörun, hér fyrir neðan verður tilkynnt um sigurvegara keppninnar.) Sigurvegari gærkvöldsins voru hinsvegar skuggadansararnir í hópnum Attraction.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Fleiri fréttir Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Sjá meira