Sport

Ennis og Bolt eru íþróttafólk ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hin árlegu Laureus-verðlaun voru veitt í gær en þeim hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum íþróttaheimsins. Athöfnin fór í þetta sinn fram í Rio de Janeiro í Brasilíu.

Hinn sprettharði Usain Bolt frá Jamaíku var valinn íþróttakarl ársins og Jessica Ennis, frjálsíþróttakona frá Bretlandi, íþróttakona ársins.

Bolt var fyrst og fremst valinn fyrir afrek sín á Ólympíuleikunum í London í sumar þar sem hann vann gullverðlaun í 100 m og 200 m hlaupum sem og 4x100 m boðhlaupi með sveit Jamaíku.

Meðal annarra sem voru tilnefndir má nefna Bradley Wiggins hjólreiðakappa, Lionel Messi knattspyrnumann, Mo Farah hlaupara og ökuþórinn Sebastian Vettel.

Ennis var ein helsta stjarna Breta á Ólympíuleikunum en hún fagnaði sigri í sjöþraut kvenna á leikunum.

Andy Murray var heiðraður fyrir frammistöðu sína á árinu en hann vann gull í einliðaleik karla í tennis á Ólympíuleikunum og varð svo fyrsti Bretinn í langan tíma til að vinna stórmót er hann fagnaði sigri á Opna bandaríska meistaramótinu.

Michael Phelps var heiðraður fyrir afrek sín á ferlinum en hann hætti keppni í sundi eftir Ólympíuleikana í sumar. Hann á alls 22 verðlaun frá Ólympíuleikum, þar af átján gullverðlaun.

Sundkappinn Daniel Dias frá Brasilíu var heiðraður fyrir afrek sín í íþróttum fatlaðra.

46 fyrrverandi íþróttastjörnur skipa dómnefnd Laureus-verðlaunanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×