Lífið

Barnalán hjá stjörnupari

Suðræna stjörnuparið Penelope Cruz og Javier Bardem eiga von á sínu öðru barni saman. Penelope og Javier giftu sig árið 2010 heima hjá vinum sínum á Bahama-eyjum.

Sex mánuðum seinna, í janúar árið 2011, eignuðust þau sitt fyrsta barn, soninn Leonardo.

Barnalán í Cruz-fjölskyldunni.
Þessar gleðifregnir þýða að Penelope og systir hennar Monica munu vera óléttar í nokkra mánuði saman. Monica upplýsti það í janúar að hún ætti von á sínu fyrsta barni með hjálp sæðisgjafa.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.