Samkomulag um endurbætur á björgunarskipum Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. apríl 2013 18:28 Samkomulagið var undirritað í dag.
Samkomulag var undirritað í dag milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar og innanríkisráðherra um greiðslur úr ríkissjóði vegna viðhalds og endurbóta björgunarskipa félagsins. Samkomulagið undirrituðu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Hörður H. Harðarson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Samkomulag Slysavarnafélagsins Landsbjargar og ríkisins er gert á grundvelli þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi 11. mars síðastliðinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar var Jón Gunnarsson. Markmiðið er að tryggja að félagið geti staðið fyrir eðlilegri og nauðsynlegri endurnýjun björgunarskipaflotans enda eru björgunarskip félagsins órjúfanlegur hluti af öryggiskerfi Íslands á leitar- og björgunarsvæði landsins. Jafnframt fól Alþingi innanríkisráðherra að kanna þörf og möguleika á að fá enn öflugri skip á tiltekna staði á landinu og er í samkomulaginu kveðið á um að samningsaðilar skuli ráðast í þá könnun. Samkomulagið kveður á um 30 milljóna króna árlega greiðslu til verkefnisins árin 2014 til 2021 miðað við verðlag ársins 2012. Slysavarnafélagið Landsbjörg forgangsraðar verkefnum sem liggja fyrir varðandi viðhald og endurbætur á björgunarskipunum og skal skila innanríkisráðuneytinu áætlun eigi síðar en 15. desember 2013. Þá skal félagið árlega afhenda ráðuneytinu áfangaskýrslur um verkefnið.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Sjá meira