Ekkju greiddar bætur þrátt fyrir að eiginmaðurinn reykti 2. febrúar 2012 13:19
Tryggingafélagið Okkar líftryggingar hf., var dæmt til þess að greiða ekkju fullar bætur vegna líftryggingar eiginmanns hennar sem lést árið 2010. Tryggingafélagið neitaði í fyrstu að greiða trygginguna og hélt því fram að hinn látni hefði vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart félaginu í sviksamlegum tilgangi þegar hann svaraði því til, þegar hann keypti trygginguna, að hann reykti ekki. Þá upplýsti hann ekki um hjartalokugalla sem hann greindist með 7-8 árum áður en hann keypti trygginguna. Maðurinn líftryggði sig árið1993. Þá hafði hann reykt í sirka 20 „pakkaár". Það er hann reykti einn pakka á dag í eitt ár. Hann var hinsvegar hættur að reykja þegar hann keypti líftrygginguna. Þá þurfti hann að svara spurningunni: „Reykir þú?" Maðurinn svaraði neitandi, enda reykti hann ekki þá. Hann féll hinsvegar á bindindinu skömmu eftir að hann keypti trygginguna. Tryggingafélagið leit svo á að maðurinn hefði vanrækt upplýsingaskyldu sína eins og fyrr segir. Þannig bauðst fyrirtækið til þess að greiða ekkju mannsins rúm 40% af tryggingunni, sem voru tæpar fimm milljónir króna. Héraðsdómur Reykjavíkur komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að tryggingafélagið hefði eingöngu spurt hvort maðurinn hefði reykt þegar hann svaraði spurningunni. Í niðurstöðu héraðsdóms segir: „Ekki voru á eyðublaðinu frekari beinar spurningar um reykingar t.d. hvort umsækjandi/tryggingartaki hefði reykt og ef hann hefði reykt en væri hættur hvenær hann hefði reykt síðast." Við þetta bætir dómari svo: „Er þá einnig haft í huga, það sem alþekkt er, að þeim sem reykja og ekki síst þeim sem reykt hafa lengi og mikið gengur oft erfiðlega að hætta reykingum til lengi tíma litið, þótt þeim takist það oft um tíma. Virðist tryggingartaki hafa verið í þeim hópi". Tryggingafélaginu er því gert að greiða ekkju mannsins fullar bætur, eða rúmar tólf milljónir vegna líftryggingarinnar.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira