Ástþór andvaka yfir framboði í uppnámi 30. maí 2012 05:00 Ástþór Magnússon.
Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi hjá innanríkisráðuneytinu, segir Ástþór Magnússon ekki hafa gert athugasemdir við tiltekna lista annarra frambjóðenda til embættis forseta. Hann hafi ekki tilgreint athugasemd sína nánar en að hann sæi á meðmælendalistum annarra frambjóðenda sömu rithönd. Ástþór Magnússon lét færa til bókar athugasemdir við meðmælalista annarra frambjóðenda á fundi í innanríkisráðuneytinu á laugardag. Ástþór vill ekki gefa upp hvaða listar það hafi verið sem annmarkar voru á að hans mati. „Þetta var bara lausleg yfirferð. Þetta er þó nokkuð augljóst á lista eins frambjóðanda úr einu kjördæmi," segir Ástþór. „Það er ekki mitt að fara yfir listana. Ég hef engin tæki eða kunnáttu til að meta undirskriftirnar. Kjörstjórnin er að votta listana án þess að fara nógu vel yfir þá." Ástþór gerir einnig athugasemd við að kjörstjórnin hafi legið á listum í meira en mánuð eftir að þeim var skilað. Fleiri einstaklingar hafi undirbúið listana áður en þeim var skilað til kjörstjórnar. Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn voru allir listarnir vottaðir án fyrirvara nema listi Ástþórs úr Norðausturkjördæmi. Engar athugasemdir voru gerðar við lista annarra frambjóðenda. Einn hefur kært meinta undirskriftarfölsun á lista Ástþórs í Norðausturkjördæmi til lögreglu. Við undirskriftarfölsunum liggja viðurlög í almennum hegningarlögum. Setur þetta ekki framboð Ástþórs í uppnám? „Að sjálfsögðu gerir það það. Ég er andvaka yfir þessu," segir hann. Um þá rannsókn sem ráðuneytið rekur nú segir Jóhannes: „Ráðuneytið gerir almenna athugun á framboðsgögnum forsetaframbjóðenda. Í rauninni er þetta almenn skoðun á vottunum frá kjörstjórnum." Auglýst verður á morgun hverjir verða í framboði til forseta.- bþh
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri fréttir Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Sjá meira