Fangelsisstjóri kærir stuld á lyftingatólum 10. febrúar 2012 08:30 Fyrrverandi fangelsisstjóri segist hafa átt lyftingatæki sem fangelsismálastjóri hafi að honum forspurðum selt til líkamsræktarstövar á Stykkishólmi og á bæ einn í Helgafellssveit. „
Ég er bara sár yfir að tapa þessu vegna þess að þetta er hluti af mínum íþróttaferli,“ segir Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri, sem kært hefur Pál Winkel fangelsisstjóra vegna lyftingalóða sem seld voru frá Kvíabryggju. Geirmundi var vikið úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju fyrir um einu og hálfu ári vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann var í nóvember síðastliðnum ákærður fyrir fjárdrátt í starfi og vísað til 39 mismunandi atriða. Þess er krafist að hann endurgreiði ríkinu tæpar tvær milljónir króna. Að sögn Geirmundar óskaði hann eftir því að fá líkamsræktartækin sem hann eigi – og reyndar fjölmarga aðra muni sína sem enn séu á Kvíabryggju – en fékk afsvar. „Páll Winkel hefur sagt að ég eigi að framvísa nótu fyrir öllu sem ég eigi á Kvíabryggju. Pabbi gaf mér þessi lóð þegar ég byrjaði að æfa tólf ára gamall,“ segir hann. Geirmundur kveðst hafa uppgötvað nýlega að hluti tækjanna sem hann hafi átt í fangelsinu hafi verið seldur til líkamsræktarstöðvar í Stykkishólmi og á sveitabæ í Helgafellssveit. Hann hafi sjálfur farið á staðinn og gengið úr skugga um að það hafi verið hans búnaður sem seldur var. Um hafi verið að ræða lóð af Brooklyn-gerð sem ekki hafi verið framleidd í þrjátíu ár. „Ég er ekki að falast eftir að fá þetta til baka frá þeim sem keyptu þetta í góðri trú,“ tekur Geirmundur fram. Hann hafi spurst fyrir um málið hjá núverandi forstöðumanni á Kvíabryggju og fengið þau svör að tólin hafi verið seld að beiðni Páls Winkel. „Ljóst er að framangreind háttsemi hlýtur að teljast brot í opinberu starfi auk þess sem um þjófnaðarbrot er að ræða,“ segir í kæru sem Geirmundur lagði fram á hendur Páli nú í vikunni. Hann krefst þess að málið verði rannsakað og Páli gerð refsing, komi í ljós að hann hafi mælt fyrir um sölu lóðanna. Þá gerir hann einnig kröfu um 400 þúsund króna bætur. „Þetta er þvæla,“ segir Páll Winkel. „Þegar ákvörðun var tekin um að banna laus lóð í fangelsum landsins gaf ég fyrirmæli um að selja lóð í eigu fangelsanna. Það var gert.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira