Einstök ákvæði stjórnarskrár borin undir þjóðaratkvæði 10. febrúar 2012 17:15 Unnið er eftir þeim línum að gott sé að fá viðhorf þjóðarinnar til mikilvægustu greina stjórnarskrárinnar. Mynd/HAG
Einstök álitaefni nýrrar stjórnarskrár verða borin undir þjóðina í atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum í júní. Að þessu er unnið innan stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Ekki er talið að það náist að fullvinna stjórnarskrárfrumvarp sem lagt verði fyrir þjóðina í sumar. Álfheiður Ingadóttir, fyrsti varaformaður nefndarinnar, segir að unnið sé eftir þeim línum að gott væri að fá viðhorf þjóðarinnar til mikilvægustu greina stjórnarskrárinnar. Með því mætti fá fram stóru línurnar í málinu. „Það er sú formúla sem við erum að vinna eftir núna. Við erum að skoða hvaða stóru mál þetta eru." Róbert Marshall, annar varaformaður nefndarinnar, tekur undir þetta. Hann var meðflutningsmaður að tillögu sem gerði ráð fyrir því að frumvarp yrði borið undir þjóðaratkvæði í júní, samhliða forsetakosningum ef af þeim yrði. „Eftir því sem vinnunni hefur undið fram í nefndinni hefur mér sýnst að það borgi sig að leggja fram nokkrar spurningar út úr skjalinu þar sem þjóðin er beðin að taka afstöðu til forsetaembættisins, ríkis og kirkju, auðlindaákvæðis og svo framvegis." Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, segir óraunhæft að hægt sé að leggja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar. Hann segir margt óljóst í sambandi við það hvað meirihlutinn ætli sér með málið. Sérfræðingar sem fyrir nefndina hafi komið hafi hins vegar verið á einu máli. „Mér er óhætt að segja að það er samdóma álit þeirra sérfræðinga sem til okkar hafa komið, hvort sem um hefur verið að ræða lögfræðinga sem hafa sérhæft sig í stjórnlagarétti eða menn úr stjórnmálafræðigeiranum, að þessar tillögur þurfi mun meiri vinnu til að hægt sé að líta á þær sem endanlegt plagg," segir Birgir. Róbert Marshall vill að nefndin vinni úr niðurstöðum slíkrar atkvæðagreiðslu og skili síðan fullbúnu frumvarpi í vetrarbyrjun. Þau Álfheiður segja það fullan vilja ríkisstjórnarinnar að klára málið á kjörtímabilinu. -kóp
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Fleiri fréttir Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Sjá meira