Skatturinn skoðar fjármál Jens 10. febrúar 2012 09:30 Jens er nú í veikindaleyfi frá störfum sem yfirlæknir lýtalækningadeildar LSH og á einkastofu sinni á Domus Medica. fréttablaðið/anton
Einn lýtalæknir er nú formlega til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hér um að ræða Jens Kjartansson. Gunnar Thorberg, staðgengill skattrannsóknarstjóra, vildi þó ekki staðfesta nafn læknisins, en segir að einn hafi staðið upp úr í skoðun embættisins á skattamálum lýtalækna með einkarekstur. „Við erum búin að vera að skoða nokkra lækna. Ég get ekki neitað því að við erum nú með einn í rannsókn," segir Gunnar. Ekki sé þó hægt að fullyrða að um skattsvik sé að ræða þar sem ekki liggi allar upplýsingar fyrir. Gunnar útilokar ekki að skattamál fleiri lækna verði skoðuð í kjölfarið. Eftir að ábendingar bárust frá velferðarráðuneytinu þess efnis að lýtalæknar með einkarekstur væru ekki að gefa viðskipti sín upp til skatts, hóf embættið skoðun til að ákvarða hvort hefja skuli formlega rannsókn. Gunnar segir rannsóknir á læknum óalgengar hjá embættinu. Þetta sé fyrsti lýtalæknirinn sem rannsakaður sé formlega. „Það er ekki daglegt brauð hjá skattrannsóknarstjóra að eltast við lækna. Langt frá því," segir hann. „Maður hafði alltaf talið að þeir væru heiðarlegri kanturinn af fólki. Það er ekkert sérlega gaman að vita af því að þeir séu ekki með sitt á hreinu." Búið er að láta Jens vita af rannsókninni og bíður embættið nú eftir að hann afhendi umbeðin gögn. Mál hans verða skoðuð aftur til ársins 2006. Ekki náðist í Jens í gær. - sv
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Innlent Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Innlent Fleiri fréttir Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Sjá meira