Barnaheill fá styrk til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda 10. febrúar 2012 10:07
Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader- og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Í tilkynningu frá samtökunum segir að styrkurinn verði nýttur til að bæta næringu þeirra barna sem sækja skóla samtakanna á þessu svæði. Barnaheill - Save the Children á Íslandi hófu stuðning og þátttöku við uppbyggingu menntunarstarfs í Norður-Úganda í lok árs 2007. „Þegar fulltrúar Barnaheilla - Save the Children á Íslandi heimsóttu Pader og Agago-héruð í nóvember 2010, kom í ljós að næringu barna er mjög ábótavant og stór hluti þeirra fær ekkert að borða í skólanum yfir daginn. Það hefur klárlega áhrif á heilsu barnanna, árangur í skóla og áhuga á áframhaldandi skólagöngu. Því óskuðu Barnaheill - Save the Children á Íslandi eftir styrk frá utanríkisráðuneytinu til að koma á sjálfbæru kerfi, þar sem t.d. væri hægt að rækta mat á skólalóðum enda eru ræktunarskilyrði góð. Skólamáltíðir bæta tvímælalaust heilsu barnanna og árangur þeirra í námi og eiga þátt í að minnka brottfall úr skólum, en brottfall stúlkna úr skóla í Norður-Úganda er 83% og 57% hjá drengjum." Þá segir að menntunarverkefnið byggi á samþættri nálgun og miði að því að veita 30 þúsund börnum í Pader- og Agago-héruðum stuðning við að komast í skóla og fá góða menntun í heilbrigðu, verndandi og barnvænu umhverfi. „Því er einnig ætlað að styrkja aðgerðir stjórnvalda í samræmi við PRDP (e. Peace Recovery and Development Plan) vegna grunnmenntunar, heilsugæslu og verndar stúlkna og drengja á svæðinu. Þá er verkefnið í samræmi við aðgerðaplan stjórnvalda um gæði menntunar (e. Quality Education Initiative). Frá árinu 2007 hafa Barnaheill - Save the Children á Íslandi lagt um 53 milljónir króna til verkefnisins, þar af hafa 32,5 milljónir komið frá utanríkisráðuneytinu." Barnaheill - Save the Children í Úganda hafa starfað í landinu frá 1990 og þekkja því vel til allra aðstæðna. Samtökin vinna náið með stjórnvöldum og heimamönnum. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og öfluga forystu. Barnaheill -Save the Children á Íslandi eru í beinu og milliliðalausu sambandi við samstarfsaðila sína í Norður- Úganda og fá sendar skýrslur um framgang verkefnisins árlega.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri Sjá meira