Ólafur Ragnar með opið hús Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. febrúar 2012 11:50 Ólafur Ragnar býður Íslendingum heim.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætlar að bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði milli klukkan fjögur og átta í dag. Gestum býðst að skoða bæði Bessastaðastofu og Bessastaðakirkju. Þetta er gert í tilefni af því að nú fer fram Safnanótt 2012. Auk þess að skoða hin merku hús frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér fjölbreytt sýnishorn gjafa, sem forseta og þjóðinni hafa borist, og merkar fornleifar sem veita innsýn í sögu búsetu og starfsemi á Bessastöðum frá landnámstíð. Packard bíll forsetaembættisins mun jafnframt standa í hlaði. Sérfræðingar verða til leiðsagnar auk þess sem nýnemar í fornleifafræði við Háskóla Íslands munu aðstoða starfsfólk við að taka á móti gestum. Séra Hans Guðberg Alfreðsson prestur í Garðaprestakalli verður í Bessastaðakirkju og segir frá kirkjunni sem er meðal elstu steinhúsa landsins. Dr. Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands segir frá þeim fjölmörgu málverkum sem prýða veggi forsetasetursins. Halldóra Pálsdóttir, sem var starfsmaður forsetaembættisins í áratugi, allt frá tíð Ásgeirs Ásgeirssonar forseta, tekur á móti gestum á lofti Bessastaðastofu og segir frá þeim fjölmörgu gripum sem þar má sjá, sýnishornum gjafa til forseta og þjóðarinnar undanfarna áratugi. Þá mun Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur og fagstjóri fornleifa hjá Þjóðminjasafni Íslands segja frá fornleifauppgreftinum á Bessastöðum og leiðsegja gestum um fornleifakjallarann undir Bessastaðastofu.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira