Tjónum á lögreglubílum hefur fækkað umtalsvert 10. febrúar 2012 11:33
Lögreglubílar á Íslandi lentu 80 sinnum í tjóni á síðasta ári. Kostnaður vegna þessa nam 7,3 milljónum króna. Tjónum hefur fækkað mikið síðustu ár en árið 2007 voru þau 140 talsins og 168 árið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu sérstaks starfshóps sem ætlað er að hafa eftirlit með öllu því er varðar ökutæki og tækjabúnað lögreglunnar. Í skýrslu hópsins sem nú er komin út segir að það sé mat manna að þessa fækkun tjóna megi meðal annars rekja til þess að akstur lögreglubíla hefur dregist verulega saman og að námskeið í forgangsakstri hafi skilað árangri. Aðhald frá starfshópnum hefur einnig skilað árangri. 151 ökutæki er til umráða hjá lögreglunni og er það svipaður fjöldi og verið hefur undanfarin ár. Á síðasta ári óku lögreglubílar tæpar fjórar milljónir kílómetra en þar er um 29 prósenta samdrátt að ræða ef miðað er við árið 2007. Tjónakostnaður 2010 var 8,4 milljónir króna og því hefur sá kostnaður lækkað um rúma milljón á milli ára. Flest verða tjónin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar eru líka flest ökutækjanna. Lögreglan á Eskifirði er með lakasta árangurinn en þar urðu átta tjón á síðasta ári og kostuðu þau 2,2 milljónir króna. Í því umdæmi voru 160 þúsund kílómetrar eknir í fyrra og kostnaður vegna tjóna því um fjórtán krónur á kílómeter. Lögreglan í Reykjavík ók hinsvegar 1,3 milljónir kílómetra og því nemur kostnaður á hvern ekinn kílómetra þar 2,5 krónum.
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum Innlent Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Innlent Fleiri fréttir Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Áformin séu það eina í stöðunni vegna neyðarástands Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Sjá meira