18 króna hækkun á árinu 1. febrúar 2012 03:15 Runólfur Ólafsson
Frá áramótum hefur verð á bensíni hækkað um sem nemur 18 krónum. Hækkun undanfarinna tveggja daga er nálægt fjórum krónum. N1 reið á vaðið í fyrradag með hækkun úr 242,7 krónum á lítrann í 246,7 krónur. Í gær fylgdu svo hækkanir á öllum öðrum bensínstöðvum. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, telur að hækkanirnar nú ráðist að nokkru af hækkun heimsmarkaðsverðs. „Fyrir helgi hækkaði bensín út af alls konar spákaupmennsku,“ segir hann, en óvissa um þróun mála hvað varðar eldsneytiskaup Evrópusambandslanda á olíu frá Íran hefur aukið óróleika á markaði sem leitt hefur til hækkana. Hækkanir á opinberum gjöldum hér innanlands um áramót hefur að auki tekið að hafa áhrif hjá olíufélögum. „Þær hafa komið til framkvæmda með nýjum birgðum,“ segir Runólfur. Síðustu hækkanir hafi verið um þremur krónum minni í Danmörku, þrátt fyrir svipaða gengisþróun gagnvart dollar og að teknu tilliti til skattahækkana hér. „Það virðist vera í þessu tilhneiging til að auka aðeins við í álagningu.“ Eldsneytisverð hefur hækkað hratt frá hruni krónunnar 2008. Runólfur bendir á að þegar krónan hrundi hafi komið neytendum hér til góða að olíuverð á erlendum mörkuðum hafi lækkað vegna samdráttar í efnahagslífi heimsins. Til þess að setja verðbreytingar síðustu ára í samhengi má líta til þess að árið 1990 kostaði tæpar 2.700 krónur að fylla 50 lítra bensíntank. Á tankinum komst bíll sem eyðir 10 lítrum á hundraðið frá Reykjavík austur að Hvalnesvita (rúma 40 kílómetra austur fyrir Höfn í Hornafirði). Núna fást tæpir 11 lítrar af bensíni fyrir sömu upphæð og skila ökumanninum austur á Hvolsvöll. Bensínverð hefur sem sagt hækkað um 367 prósent en þó ber að hafa í huga að almennt verðlag hefur hækkað um 178 prósent frá 1990. - óká
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira