Bjargsigið í útrýmingarhættu, ekki svartfuglarnir Kristján Már Unnarsson skrifar 1. febrúar 2012 19:27
Það eru bjargsigsmennirnir og ævagamlar menningarhefðir sem eru í mestri útrýmingarhættu, en ekki svartfuglarnir, segir helsti sigmaður Vestmannaeyja, sem óttast að fimm ára veiðibann verði til þess að kunnátta og hefðir við eggjatöku glatist. Á myndum Gísla Óskarssonar í fréttum Stöðvar 2 sjáum við Harald Geir Hlöðversson í bjargsigi en það hefur ekki þótt heiglum hent að nýta fuglabjörgin. Nefnd á vegum umhverfisráðherra hefur nú lagt til að veiðar á fimm tegundum svartfugla, og þar með eggjataka, verði bannaðar í fimm ár. Haraldur Geir, sem er sigmaður Veiðifélags Bjarnareyinga, segir að slíkt bann myndi hafa gríðarleg áhrif í menningarlegu tilliti. Þeir séu aðeins örfáir orðnir eftir sem stundi þetta og ef einhverjir ,,fuglar" séu í útrýmingarhættu þá séu það þeir eggjakarlarnir. Þá sé hætta á að týnst geti sú hefð og kunnátta sem þeir hafi verið að færa á milli kynslóða. Líklegt þykir að fuglabjörgin hafi verið nytjuð frá upphafi Íslandsbyggðar og frásögn Njálssögu af Þorgeiri skorargeir er úr björgunum í Eyjum. Viðurnefnið skorargeir hlaut Þorgeir þar sem hann fór um gilskoru í fuglabjargi. Haraldur Geir segir Eyjamenn viðurkenna vandann og að lundinn sunnanlands hafi átt erfitt uppdráttar. Hann telur þó að staða lundans sé skárri en lýst hafi verið, vísar til svokallaðs pysjueftirlits Eyjamanna, og þá bendi margt til þess að hluti stofnsins hafi flutt sig norður í land í betra atlæti. Það sé því ekki alger dauði í þessu að þeirra áliti. Haraldur Geir segir svartfugl njóta í raun náttúrulegrar verndar í hrikalegum björgum og veiðin sé orðin hverfandi. Þá kveðst hann ekki merkja slæmt ástand svartfugls í Bjarnarey en þar er langvían algengust á bjargsyllum. Hann skrifar ekki upp á að langvíunni hafi fækkað þar um 30%, allavega ekki á þeim bælum sem þeir hafi heimsótt árlega. Þar hafi staðan ekkert breyst.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira