Ferlar kynferðisbrotamála verði endurskoðaðir 17. október 2012 07:00
Skúli Helgason, varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar, vill að stofnuð verði sérstök undirnefnd nefndarinnar sem fari yfir ferla kynferðisbrotamála á Íslandi. Að sögn hans fékk tillagan góðan hljómgrunn á nefndarfundi á mánudag. Allsherjar- og menntamálanefnd hefur haldið tvo fundi eftir að Fréttablaðið birti grein í byrjun október um hlutfall kynferðisbrotamála sem enda með sakfellingu. „Við fórum yfir þetta og fengum mikinn sjóð af upplýsingum sem við verðum að kafa ofan í,“ segir Skúli. „Við ætlum að halda áfram með þessi mál því það er ljóst að það eru brotalamir í kerfunum sem við verðum að takast á við.“ Hann nefnir þar sérstaklega þann tíma sem getur tekið fyrir kynferðisbrotamál að fara í gegnum kerfið og segir hann slíkt engum bjóðandi. Dæmi eru um að mál hafi tekið tvö ár að fara í gegn. Þá var einnig rætt á fundunum hvernig hægt sé að styðja við núverandi stofnanir í málaflokknum. Tillaga Guðrúnar Jónsdóttur, talskonu Stígamóta, um stofnun embættis sérstaks saksóknara kynferðisbrota, var lögð fyrir fundargesti en að sögn Skúla var talið að aðrar leiðir skiluðu betri árangri. Innan við þrjú prósent kynferðisbrotamála sem kærð eru til lögreglu enda með sakfellingu fyrir dómi eftir að ríkissaksóknari hefur fengið þau inn á borð til sín. Um 75 prósent mála sem tilkynnt eru til lögreglu fara ekki áfram til meðferðar hjá embættinu. - sv
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Fleiri fréttir Samstöðin loki mögulega í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Náðu manni úr sjónum eftir að strandveiðibátur sökk Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Sjá meira