Innlent

Mikið um drykkjuskap og óspektir á Akranesi

Hamar, bjórglas og billjard kúla voru meðal barefla, sem beitt var hér og þar á Akranesi um helgina, sem var óvenju erilsöm hjá lögreglunni vegna drykkjuskapar og óspekta.

Þrátt fyrir margvísleg átök, meiddist engin alvarlega og engin kærumál hafa risið vegna þessa.

Skessuhorn hefur það eftir lögreglumanni á Akranesi, að um tíma hafi lögreglumenn velt fyrir sér hvort einhverri ólyfjan hafi verið blandað út í drykkjarvatn bæjarbúa og ært þá, sem á supu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×