Frægir deyja þegar fótboltamaður skorar mark Boði Logason skrifar 13. febrúar 2012 10:24 Fjórir hafa dáið eftir að Aaron Ramsey skorar. Tilviljun, segir talnaspekingur. Samsett mynd Vísir „
Þetta er ótrúlegt. Tölurnar geta komið manni á óvart í sambandi við hvað sem er en ég held að þetta geti allt eins verið tilviljun," segir Hermundur Rósinkranz, talnaspekingur og miðill. Stuðningsmenn Arsenal í Bretlandi tengja nú dauða söngdívunnar Whitney Houston við miðjumann liðsins, hinn velska Aaron Ramsey. Í hvert einasta skipti sem miðjumaðurinn skorar þá deyr einhver frægur. Whitney Houston var sú fjórða síðan í maí á síðasta árið. Í maí skoraði Ramsey á móti Manchester United og daginn eftir var hryðjuverkamaðurinn Osama Bin Laden drepinn. Í október skoraði hann gegn Tottenham Hotspurs og þremur dögum síðar lést forstjóri Apple, Steve Jobs. Síðar í þeim mánuði skoraði Ramsey á móti Marseille í Meistaradeildinni. Daginn eftir var leiðtogi Líbíu drepinn. Og á laugardaginn skoraði Ramsey á móti Sunderland en Whitney fannst látin á hótelherbergi sínu sama dag. Hermundur hefur mikið spáð í tölur síðustu ár en hann segir að ekki sé hægt að segja neitt til um þessa ótrúlegu tilviljun. Aaron Ramsey spilar í treyju númer 16. „Einn og sex þýðir heimili og fjölskylda og sjálfstæði. Hún gefur einnig töluna 7, einn plús sex, en það er hin guðlega tala og henni getur oft fylgt andlát," segir Hermundur en tekur þó fram að Ramsey þurfi ekkert að passa sig sérstaklega á því að skora ekki. „Ég ætla að fylgjast með þessum gaur, ég þori ekkert að segja til um þetta en mín tilfinning er sú að þetta sé tilviljun." Whitney Houston dó þann 11. febrúar en Hermundur segir að sú tala beri alltaf með sér fréttir. „Þessi dánardagur mun verða minnistæður. Það er mjög merkilegt að margir í tónlistarbransanum deyja á milli 20 og 30 ára og 40 og 50 ára. Það stendur upp úr - það er svolítið skrýtið. Þetta er líka oft fólk sem er mjög stórt í umhverfinu og hefur mikil áhrif. Afhverju, veit ég ekki. Ég skil ekki afhverju það getur ekki lifað til sjötugs," segir hann.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Sjá meira