Innlent

Stór dráttarbíll valt á Fjarðarheiði

Ökumaður og farþegi slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar stór dráttarbíll með tengivagn valt á hliðina á Fjarðarheiði ofan við Seyðisfjörð, í vonsku veðri og hálku í gærkvöldi.

Annar mannanna var fastur í bílnum eftir veltuna og þurftu lögregla og björgunarlið að beita klippum til að ná honum út. Báðir voru fluttir á sjúkrahúsið á Seyðisfirði.

Bíllinn er mikið skemmdur en reynt verður að ná honum og vagninum upp á veginn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×