Innlent

Enginn handtekinn vegna ránsins á Akureyri

Lögreglan á Akureyri var fram eftir öllu kvöldi í gær að vinna úr vísbendingum um ránið, sem framið var í Fjölumboðinu við Geirsgötu á Akureyri um hádegisbil í gær.

Vísbendingar hafa þó ekki leitt til handtöku, enn sem komið er, en ræninginn ógnaði starfsmanni með úðabrúsa og tók peninga úr afgreiðslukassa.

Talið er að ránsfengurinn nemi hundruðum þúsunda króna, en lögregla gefur ekki upp neina tölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×