Innlent

Kona á sjötugsaldri ákærð fyrir fjárdrátt í Kaupþingi

Kona á sjötugsaldri hefur verið ákærð fyrir að draga sér fé yfir fjögurra ára tímabil þegar hún starfaði fyrir heimabankaþjónustu Kaupþings á eignastýringasviði bankans. Alls á konan að hafa stolið rétt rúmlega 50 milljónum króna.

Samkvæmt frétt RÚV um málið aðstoðaði konan viðskiptavini bankans við að gefa út bæði skuldabréf og víxla, og voru milljónirnar 50 hluti söluandvirðis þeirra.

Konan gæti á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisdóm verði hún fundin sek.

Það er sérstakur saksóknari sem ákærir í málinu en samkvæmt frétt RÚV var ákæran gefin út á föstudaginn fyrir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×