Fleiri dómsmál þarf til þess að skera úr um vafaatriði með gengislánin 24. febrúar 2012 19:00
Bæði einstaklingar og fyrirtæki sem voru í skilum með gengislán, þrátt fyrir frystingar eða greiðslufresti, geta vænst þess að falla undir nýjasta gengislánadóminn, samkvæmt nýrri álitsgerð lögmanna. En þrátt fyrir víðtækt fordæmisgildi - telja menn að enn þurfi allnokkur dómsmál til að skera úr um vafaatriði. Samtök fjármálafyrirtækja óskuðu eftir því við lögmenn Lex að fá frá þeim greinargerð um Hæstaréttardóminn sem féll í liðinni viku um að ólöglegt hafi verið að setja afturvirka seðlabankavexti á gengislán hjóna sem búa í miðbænum. Fjölmörg vafaatriði hafa sprottið í umræðunni um túlkun dómsins og fordæmisgildi hans fyrir aðra gengislánaskuldara. Lögmenn Lex sendu þeir frá sér álitsgerð í dag og þeirra niðurstaða er í stuttu máli að allir sem eigi fullnaðarkvittun um greiðslur falli undir dóminn. Í öðru lagi að hafi fólk nýtt sér greiðslufresti, frystingar eða breytt lánum sínum - þá falli það undir dóminn, svo framarlega sem fólk var í skilum fram að breytingu. Karl Axelsson, hæstaréttarlögmaður á LEX, telur hins vegar vafasamt að dómurinn nái yfir þá sem voru í vanskilum þegar lán þeirra voru fryst eða þeim breytt. Í þriðja lagi telja þeir að dómurinn nái yfir gengislán bæði fólks og smærri fyrirtækja Ekki stendur til að reikna lánin upp að nýju út frá álitsgerðinni - enda telja lögmenn LEX að enn séu fjölmörg álitaefni sem skera þurfi úr fyrir dómstólum. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, segir að nú þegar séu mál í dómskerfinu sem bíði niðurstöðu sem gætu varpað ljósi á þessi vafaatriði. Hann segir hins vegar ekki ólíklegt að fara þurfi í fleiri dómsmál til að skera endanlega úr um örlög þessara lána. Karl Axelsson tekur í sama streng og efast um að menn hafi séð fyrir endann á málaferlum um stöðu gengislána. Óvissunni um stöðu tugþúsunda gengislána fólks og fyrirtækja - mun því ekki linna á næstu dögum, nema því aðeins að Alþingi setji lög um nýja endurútreikninga.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira